Vinsamlega sendið fyrirspurnir á andri.gitar@gmail.com.
Andri Ívars hóf feril sinn sem uppistandari á 'open mic kvöldum' í Reykjavík en fór fljótlega að fá beiðnir um að skemmta í afmælisveislum, starsmannapartíum, framhaldskólaskemmtunum, sem og á lágstemmdun tónleikum.
Upp á síðkastið hefur hann m.a. komið fram á uppistandskvöldum með Sögu Garðars og Hugleiki Dagssyni og sem gestur með uppistandshópnum Mið-Íslandi. Andri nýtir sér gítarinn til að flétta tónlist inní atriðin sín og er þekktur fyrir að spila hetjusóló á kassagítarinn á milli brandara.
Best er að beina fyrirspurnum á netfangið andri.gitar@gmail.com.
"Menn sem geta spilað geðveik gítarsóló verðskulda ekki að vera fyndnir líka. Andri Ívars er óþolandi góður í báðu." - Ari Eldjárn
"Frábær og fyndin skemmtikraftur. Ég vil ekki hitta þann mann sem líkar illa við Andra Ívars" - Björn Bragi
"Andri Ívars er Fyndnasti trúbador síðan persónulegi trúbadorinn úr fóstbræðrum" - Hugleikur Dagsson